Um helgina fannst mér ógeðslega sniðugt að fara í geðveika
megrun, æfa ógisla mikið og borða bara ekkert, algjörlega ekkert
óholt - ég byrjaði vel, fékk mér snakk og kók á föstudaginn :-o í
gær borðaði ég svo helling af óhollustu - góðum mat og var ekkert
að pæla í fituinnihaldinu! Ég er ekki að deyja úr fitu... en ég
meina maður má nú samt alltaf við því að missa nokkur kíló
Ég er
svo svakalega léleg að halda mig við einhverjar svona ákvarðanir...
ekkert búin að hugsa um þetta í dag, fékk mér meira að segja fullt
af sósu með fisknum í hádeginu, huhummm... svo fær maður samt svona
smá samviskubit af því að Soffía og Kristín í vinnunni eru svo
ógeeeeðslega duglegar í átakinu sínu, ég dáist að þeim!!!
En matur er bara svo óóógeðslega góður!!! erfitt!
Annars var helgin ágæt... ég er bara drulluþreytt eftir hana...
fór "edrú" á djammið á föstudaginn ... fékk mér einn og hálfan bjór
með Tótlu og við hittum miiikið af skemmtilegu fólki, var að til
fjögur! áfengi óþarfi - ég hætti sem sagt að drekka svona bráðum,
kannski ef til vill... huhuuuumm... ég er að fara á tvöfalt, ef
ekki þrefalt fyllerí næstu helgi og ekki verður maður minna
þreyttur eftir þá helgi!
Ég fór svo á tónleika með ElectroFlamingo á Nasa á
Laugadaginn kl. 17.00... með mömmu og Katrínu Friðmey litlu frænku,
það var rosalega gaman - mjög spes, mjög öðruvísi, mjög flott! og
Friðmey litla var alveg heilluð!
Ég fór svo að keppa á Akureyri í gær, púff... út á flugvöll kl.
09.00 og heim kl. 22.00 - allur dagurinn sem sagt undirlagður af
blaki - en helvíti var þetta gaman, unnum KA 3-0 jíbbý - ef við
vinnum í leiknum á morgun verðum við Íslandsmeistarar!!! annars...
vonandi... á fimmtudaginn (nenni samt ekki að fara norður aftur,
þannig að við ætlum að vinna á morgun) - snýst allt um tvo unna
leiki jibbý...
Allt að verða vitlaust í blakinu þessa dagana... og andsk. nóg
að gera... held ég hafi bara staðið mig ágætlega í öllu sem ég hef
tekið mér fyrir hendur undanfarna daga 
ȁĿȌ