Í þessum töluðu orðum ætlaði ég að vera í góðra vina hópi á
Akureyri í afmæli/innflutningspartý hjá Hólmari!!! Ég vaknaði
klukkan níu í morgun til að gera mig reddý fyrir flugið norður...
en andskotinn! það var ekkert flogið í dag! var alltaf athugað á
2-4 klukkutíma fresti en svo var bara algjörlega hætt við...
Dagurinn er þó búinn að vera mjög góður... hékk í Ósóma í nær allan
dag og fór svo í sjötugsafmæli... nú er ég komin snemma heim, er að
fara að keppa á morgun við KA, fyrir norðan, óskandi að það verði
flogið, við ætlum að vinna og að því loknu munum við eiga leik, að
öllum líkindum við Þrótt Neskaupsstað, næstu helgi, einnig fyrir
norðan og þá verðum við bikarmeistarar 
En Hólmar, mér finnst leiðinlegt að geta ekki smellt einum á
kallinn! En til hamingju með daginn og íbúðina, mér skilst að hún
sé Hen Hao 