Það ku vera fallegt í Kína
20.03.2006 23:30:40 / thordissif

Rokk-trúlofun

Jæja... ég var ótrúlega lengi að ákveða hvort ég ætti að halda afmæli og þá hvaða þema ég ætti að hafa! Svo á miðvikudaginn 15. mars ákvað ég að partý skyldi halda og að þemað mætti ekki vera of flókið, alltof stuttur tími til stefnu. Þannig að við Gulli ákváðum að - Rockabilly / Country / Grease - myndi sæma okkur vel og að partýið yrði haldið á Ellefunni.

Við buðum auðvitað fullt vinum og fjölskyldu og það var alveg ógeðslega gaman... fullt af fólki sem mætti í gervi, af sjálfsögðu, fólkið okkar klikkar sko ekki! Mömmur okkar mættu og voru í miklum vandræðum allan daginn í hverju þær ættu að vera!

Klukkan ellefu var komið að töfrabrögðunum hjá kallinum... Sem saman stóð af því að spila á kerti og grípa loga... daddara og ég var svona "daddara" gógópía... Þegar kallinn var búinn að sína sig í töfrabrögðunum sagði hann fólkinu að hann hefði nú ekki átt mikla peninga til að kaupa handa mér afmælisgjöfina, en stærsta gjöfin væri kannski eftir!!! Ég fékk líka þetta æðislega bónorð - kallinn fór á skeljarnar fyrir framan allt fólkið og greyi ég var svo dofin eitthvað og trúði því ekki að greyi hann þurfti að bíða svolítinn tíma eftir JÁ-inu.... Þessar fáu sekúndur voru eins og margar mínútur fyrir okkur bæði! þetta var æði!

Nú erum við Gulli sem sagt trúlofuð og ætlum að gifta okkur!

Kristín Amelía skrifaði
Þó að ég sé búin að hitta ykkur og knúsa ykkur þá vil ég samt segja hér á netinu til hamingju. Hlakka til að sjá ykkur giftast dúllurnar mínar. Kveðja Kristín Amelía.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.